Út og vestur
Jafnvægi er kjörorð fyrirtækisins sem birtist meðal annars í viðleitni til að:
- Skipuleggja alltaf ferðir í samvinnu við heimamenn á því svæði sem sótt er heim.
- Fara um án þess að náttúru, menningu, umhverfi og öryggi sé teflt í tvísýnu.
- Halda á lofti sögu og menningarminjum á hverju svæði.
- Stuðla að frjóum samskiptum gesta og gestgjafa.
Í þessu felst vistvæn ferðaþjónusta sem er fyrirtækinu mikið hjartans mál.
"Slík ferðaþjónusta auðgar náttúru- og menningarupplifun, er skipulögð af ábyrgum ferðaþjónustuaðilum sem bera umhyggju fyrir gestum sínum, umhverfinu og samfélaginu sem þeir eru hluti af." Skilgreining Alþjóðasambands vistvænnar ferðaþjónustu (TIES) - Unnið er að umhverfisvottun og aðild að TIES og samstarfi við EPSD
Meira um vistvæna ferðaþjónustu
Búnaður: Oftast er gist í 8 manna tjöldum með möguleika á kyndingu. Farið er um gangandi, hjólandi, ríðandi eða róandi. Yfirleitt fylgir trússbíll eða mótorbátur. Hægt er að hafa milligöngu um leigu á reiðhjólum og kajak en best er að taka með sitt eigið.
Fararstjórar: Yfirleitt eru það hjónin Jón Jóel Einarsson og Maggý Magnúsdóttir sem eru gamlir útivistarjaxlar með rætur í byggðinni. Þau búa yfir áratuga reynslu af útivist upp til fjalla, inn til dala og út til stranda og hafa uppgötvað að í því felast verðmæti sem þau vilja deila með öðrum.
Upplýsingar: Sjá bækling: \files\Kynningarefni\Bæklingur til útprentunar.pdf
Sími 695-9995/694-9513 - gowest@utogvestur.is

Breiðafjarðarsvæðið er
sérlega merkilegt, fjölbreytt og auðugt, t.d. vegna:
-
Lífríkis, jarðmyndana og landslags.
-
Blómlegrar menningar um aldir, mótuð af sjósókn og hlunnindabúskap.
-
Sagnaritunar, bókmenningar og skáldskapar.
-
Fólksins sem þar býr, enn kraftmikið og elskulegt.



